Hlutir og hluthafar
Hlutafé félagsins tilheyrir allt einum flokki hlutafjár og er hver hlutur ein króna að nafnverði og eitt atkvæði. Viðskipti með hlutabréf bankans fara fram hjá Nasdaq Iceland en einnig hjá Nasdaq Stockholm í formi sænskra heimildaskírteina (SDR) þar sem eitt SDR jafngildir einum hlut.
Aðalfundur Arion banka hf. sem fram fór þann 16. mars 2022 samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 150.000.000 kr. að nafnvirði, sem nemur 150.000.000 hlutum, til jöfnunar á eigin hlutum félagsins. Lækkunin var framkvæmd þann 4. apríl 2022. Hlutafé félagsins lækkaði því úr 1.660.000.000 kr. í 1.510.000.000 kr. að nafnvirði og nam sömu upphæð í árslok. Eftir lækkunina átti Arion banki samtals 10.717.707 eigin hluti og heimildarskírteini. Í árslok átti Arion banki samtals 45.417.587 eigin hluti og heimildarskírteini eða um 3,01% af útgefnu hlutafé. Hækkun fjölda eigin bréfa eftir lækkun hlutafjár skýrist af endurkaupaáætlunum sem hófust í byrjun september 2022 og stóðu fram yfir áramót.
Stærstu hluthafar og hreyfingar
Hluthafar sem eiga um eða yfir 1% af útgefnu hlutafé og juku eignarhald sitt í bankanum á árinu 2022 voru Vanguard sem bætti við sig um 2,27 prósentustigum, Brú lífeyrissjóður bætti við sig um 1,33 prósentustigum og Stefnir funds um 1,17 prósentustigum. Þeir hluthafar sem minnkuðu hlut sinn mest á árinu 2022 voru Bóksal sem minnkaði hlut sinn um 1,26 prósentustig, MainFirst Bank AG um 1,19 prósentustig og Akta sjóðir um 0,76 prósentustig. Hluthöfum fjölgaði um tæplega 7% á árinu 2022.
Í árslok 2022 var Gildi lífeyrissjóður stærsti hluthafinn í Arion banka með 9,77% eignarhlut. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins var annar stærsti hluthafi bankans með 9,53% eignarhlut og þriðji stærsti var Lífeyrissjóður verzlunarmanna með 9,14% hlut.
Stærstu hluthafar 31.12.2023 | Fjöldi hluta | % |
---|---|---|
Gildi lífeyrissjóður | 143.848.037 | 9,85% |
LSR lífeyrissjóður | 140.409.816 | 9,62% |
Live lífeyrissjóður | 131.746.948 | 9,02% |
Stoðir hf. | 78.500.000 | 5,38% |
Brú Lífeyrissjóður | 63.338.437 | 4,34% |
Vanguard | 57.120.244 | 3,91% |
Birta lífeyrissjóður | 52.326.798 | 3,58% |
Frjálsi lífeyrissjóður | 51.841.685 | 3,55% |
Stapi lífeyrissjóður | 41.683.628 | 2,85% |
Hvalur hf. | 36.771.350 | 2,52% |
Festa lífeyrissjóður | 34.814.831 | 2,38% |
Stefnir Asset Management Company hf | 33.604.369 | 2,30% |
Íslandsbanki hf. | 32.766.287 | 2,24% |
Kvika banki hf. | 24.288.526 | 1,66% |
Almenni lífeyrissjóðurinn | 22.140.174 | 1,52% |
Lífsverk lífeyrissjóður | 17.939.936 | 1,23% |
Sjóvá | 15.923.881 | 1,09% |
Landsbankinn hf. | 15.498.519 | 1,06% |
Heimild: Nasdaq Iceland, Euroclear Sweden og Modular finance
Eignarhald – skipting milli landa
Í lok árs 2022 voru tæplega 91% hluthafa íslensk. Aðrir hluthafar voru fyrst og fremst frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Svíþjóð og Kúveit. Hluthafar bankans voru rúmlega 12 þúsund í lok árs 2022 og fjölgaði um 770 á árinu eða um 6,4% prósentustig.
Land | 31.12.2022 | 31.12.2021 |
---|---|---|
Ísland | 90,8% | 91,4% |
Bandaríkin | 3,2% | 1,1% |
Bretland | 1,2% | 0,5% |
Svíþjóð | 0,8% | 1,0% |
Kuwait | 0,2% | 0,7% |
Þýskaland | 0,0% | 1,2% |
Annað | 3,8% | 4,1% |
Heimild: Nasdaq Iceland, Euroclear Sweden og Modular finance
Arðgreiðslur og endurkaup
Aðalfundur Arion banka í marsmánuði samþykkti að 22,5 milljarða króna arður yrði greiddur á árinu vegna uppgjörsársins 2021 eða sem samsvarar 15 krónum á hlut. Á árinu 2022 keypti bankinn jafnframt eigin bréf fyrir um 9,9 milljarða eða 57.981.807 hluti og heimildarskírteini (SDR).
Hlutabréfaviðskipti og árangur
Eftir 101% hækkun hlutabréfaverðs Arion banka á árinu 2021 var verðþróun hlutabréfa bankans á árinu 2022 neikvæð samhliða krefjandi mörkuðum og óvissu í heimsmálum. Hlutabréf bankans á aðalmarkaði Nasdaq Iceland lækkuðu um 21,3% á árinu og SDR á Nasdaq í Stokkhólmi lækkuðu um 18,2%.
Meðalvelta á árinu 2022 með hlutabréf bankans og SDR lækkaði frá fyrra ári. Dagleg meðalvelta var um 3,5 milljónir hlutabréfa og um 200 þúsund SDR eða um 3,75 milljónir bréfa samtals samanborið við samtals um 8 milljónir bréfa árið 2021.
Þróun hlutabréfaverðs Arion banka og banka á Norðurlöndum
Hér má sjá þróun hlutabréfa og SDR Arion banka á síðustu tveimur árum og samanburð við vísitölur, valda stóra og skráða banka á Norðurlöndum sem og meðalstóra (mid cap) norræna banka. Sjá má að hlutbréfaverð bankans hækkaði verulega á árinu 2021 en lækkaði svo á árinu 2022.
Verðþróun – hlutabréf á Íslandi og heimildarskírteini (SDR) í Svíþjóð
Samanburður verðþróunar við stóra banka á Norðurlöndum 2021-2022
Samanburður verðþróunar við meðalstóra banka á Norðurlöndum 2021-2022
Þróun hlutabréfaverðs 2021-2022
með og án tillits til arðgreiðslna
Banki | Breyting | Breyting m.t.t. arðs |
---|---|---|
Sydbank | 117,50% | 140,50% |
Arion SDR | 79,10% | 96,90% |
Jyske Bank | 93,60% | 93,60% |
Spar Nord Bank | 77,90% | 93,30% |
Nordea | 66,10% | 92,40% |
Ringkjöbing Landsbank | 71,10% | 74,70% |
Arion Bank | 57,90% | 74,00% |
Íslandsbanki | 51,60% | - |
SEB | 42,00% | 60,70% |
SR-Bank | 32,60% | 50,30% |
Handelsbanken | 32,80% | 46,40% |
Swedbank | 23,00% | 44,70% |
Danske Bank | 36,40% | 41,10% |
DNB | 15,70% | 33,60% |
Aktia | 4,40% | 20,40% |
Kvika Bank | 9,80% | 9,80% |
Helstu tölur
Hlutabréf Arion banka (frá skráningu á almennan hlutabréfamarkað) | 2022 | 2021 | 2020 | 2019 | 2018 |
---|---|---|---|---|---|
Hagnaður á hlut, í krónum | 17,06 | 17,96 | 7,24 | 0,61 | 3,86 |
Arður á hlut, í krónum | 15 | 1,74 | 0,00 | 5,00 | 5,00 |
V/H hlutfall | 8,79 | 10,61 | 13,12 | 141,48 | 18,26 |
Markaðsvirði, ma.kr. | 226 | 289 | 163 | 153 | 141 |
Markaðsvirði, ma.SEK. | 16,5 | 20,3 | 10,5 | 11,9 | 9,4 |
Hlutabréfaverð, 31 desember, kr. á hlut | 150 | 190,5 | 95 | 86,3 | 70,5 |
Hlutabréfaverð (í formi SDR), 31. desember, SEK | 10,96 | 13,40 | 6,12 | 6,69 | 5,18 |
Hæsta hlutabréfaverð á árinu (dagslokaverð), kr. á hlut | 191,5 | 198 | 95 | 86,3 | 93,6 |
Hæsta hlutabréfaverð á árinu (SDR dagslokaverð), SEK | 14,4 | 13,60 | 6,85 | 6,69 | 8,07 |
Lægsta hlutabréfaverð á árinu (dagslokaverð), kr. á hlut | 147,5 | 93,7 | 49 | 69,25 | 70,5 |
Lægsta hlutabréfaverð á árinu (SDR dagslokaverð), SEK | 10,96 | 6,02 | 3,49 | 5,25 | 5,18 |
Ávöxtun í árslok, kr. | -21,3% | 100,5% | 10,1% | 22,4% | -6,0% |
Ávöxtun í árslok (SDR), SEK | -18,2% | 119,0% | -8,5% | 29,2% | -15,2% |
Ávöxtun hluthafa mælt í krónum, % | -13,4% | 102,4% | 10,1% | 29,5% | 0,7% |
A/V hlutfall mælt í krónum, % | 10,0% | 0,9% | 0,0% | 5,8% | 7,1% |
Meðalvelta á dag á Nasdaq Iceland (fjöldi hluta) | 3.547.348 | 7.639.689 | 4.244.811 | 5.226.166 | 1.206.679 |
Meðalvelta á dag á Nasdaq Stockholm (fjöldi SDR) | 198.530 | 331.374 | 648.087 | 1.535.434 | 1.289.180 |
Fjöldi útistandandi hluta 31. desember (milljónir hluta) | 1.505 | 1.518 | 1.718 | 1.773 | 1.814 |
Fjöldi eigin hluta/SDR 31. desember (milljónir hluta) | 45 | 142 | 12 | 41 | 186 |
Fjöldi útgefinna bréfa, milljónir | 1.510 | 1.660 | 1.730 | 1.814 | 2.000 |