GRI Standards tilvísunartafla
Árs- og samfélagsskýrsla Arion banka 2022 hefur verið undirbúin til samræmis við Global Reporting Initiative, GRI Standards og UFS leiðbeiningar Nasdaq. Þá er einnig horft til heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og 10 grundvallarviðmiða Global Compact, sáttmála Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð fyrirtækja. Arion banki er aðili að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi og hefur unnið að innleiðingu markmiðanna frá undirritun í september 2019. Upplýsingar um framvindu þeirrar vinnu er að finna hér.
GRI tilvísunartafla 2022
Upplýsingar sem settar eru fram í GRI Standards tilvísunartöflu gilda fyrir árið 2022 og tengjast meginstarfsemi Arion banka. Lögð er áhersla á að uppfylla þá þætti sem snúa að lýsingu á starfseminni, samfélagslegum áhrifum hennar, mannauði, umhverfisáhrifum, stjórnarháttum og efnahag.
Deloitte hefur veitt álit með takmarkaðri vissu á upplýsingagjöf Arion banka í tengslum við sjálfbærni árið 2022 sem sett er fram samkvæmt GRI Standards og UFS leiðbeiningum Nasdaq.
Gögn sem snúa að umhverfisáhrifum bankans eru unnin í samstarfi við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Klappir grænar lausnir. Gögnum er í flestum tilfellum streymt beint frá þjónustuaðilum í umhverfiskerfið Klappir Core. Í þeim tilfellum sem gagnastraumar voru ekki tiltækir var notast við bókhaldsgögn. Klappir grænar lausnir yfirfara jafnframt gögnin. Gögn sem snúa að mannauði koma úr mannauðskerfi bankans. Fjárhagsupplýsingar hafa verið endurskoðaðar og staðfestar af endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte.
Við hlustum á hagsmunaaðila okkar og tökum tillit til þeirra sjónarmiða við val okkar á efnistökum í þessari skýrslu.
GRI 3-1, GRI 3-2 og GRI 3-3
Ferli við val á mikilvægisþáttum, hverjir þeir eru og stýring þeirra
Innleiðing á GRI 3 2021 hefur ekki að fullu átt sér stað en skýrslugjöf Arion banka tekur í fyrsta sinn mið af GRI 1 2021, GRI 2 2021 og GRI 3 2021. Áður hafði skýrslugjöfin verið út frá GRI Core en fylgir nú GRI Standards.
Við val á mikilvægisþáttum í Árs- og sjálfbærniskýrslu 2022 var byggt á vinnu og skýrslugjöf fyrri ára. Meðal annars var horft til könnunar sem bankinn gerði í ársbyrjun 2021 meðal hagsmunaaðila í tengslum við sjálfbærni og samfélagsábyrgð. Könnunin var gerð í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið CIRCULAR Solutions, sem jafnframt vann úr niðurstöðunum. Allt starfsfólk og stjórnendur fengu könnunina senda sem og úrtak viðskiptavina, birgja, samstarfsaðila og hluthafa. CIRCULAR vann jafnframt mikilvægisgreiningu fyrir bankann út frá áhrifum bankans á sviði lánveitinga og fjárfestinga. Ekki hefur orðið grundvallarbreyting á starfsemi bankans síðan farið var í þessa vinnu.
Einnig var horft til mikilvægisgreiningar sem framkvæmd var árið 2021 og greiningar innlendra og erlendra aðila á bankanum í tengslum við frammistöðu bankans í umhverfis- og félagsþáttum og stjórnarháttum. Líkt og fyrri ár nýtum við okkur flest þau atriði sem koma fram í UFS leiðbeiningum Nasdaq í skýrslugjöfinni.
Bein og óbein áhrif af starfseminni
Þrátt fyrir að bein umhverfisáhrif af starfsemi banka séu ekki mikil samanborin við aðrar atvinnugreinar teljum við engu að síður mikilvægt að upplýsa um þann þátt. Arion banki vill vera til fyrirmyndar þegar kemur að umhverfis- og loftslagsmálum og bankinn hefur sett sér það markmið að draga úr losun í eigin starfsemi um 55% fyrir árið 2030 og hefur frá árinu 2015 verið aðili að loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar og þar með skuldbundið sig til að birta árangurinn. Við val á viðfangsefnum í tengslum við GRI staðalinn veljum við því þá þætti sem snúa að losun gróðurhúsalofttegunda í starfsemi bankans og við teljum viðeigandi að birta.
Við gerum okkur grein fyrir því að áhrif bankans í tengslum við umhverfis- og loftslagsmál eru mest óbein og þá helst þegar kemur að þjónustu okkar við viðskiptavini og þá ekki síst í gegnum lánveitingar okkar og fjárfestingar. Við erum á þeirri vegferð að styðja betur við viðskiptavini okkar og samfélagið þegar kemur að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, meðal annars út frá markmiðum Parísarsamkomulagsins og heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Í byrjun árs 2022 birtum við fyrstu Áhrifa- og úthlutunarskýrslu bankans sem nær yfir úthlutun fjármuna sem aflað hefur verið með grænum skuldabréfaútgáfum og grænum innlánum árið 2021. Deloitte hefur endurskoðað nýtingu fjármuna sem aflað hefur verið með grænum skuldabréfaútgáfum og grænum innlánum með takmarkaðri vissu.
Arion banki er aðili að Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF). Um er að ræða alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálafyrirtækja sem hefur það meginmarkmið að samræma mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem fjármálafyrirtæki fjármagna í gegnum lánveitingar og fjárfestingar. Bankinn birti sína fyrstu skýrslu um fjármagnaðan útblástur í árslok 2022 sem byggir á aðferðafræði PCAF. Mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda sem fjármögnuð er í gegnum lánveitingar og fjárfestingar er forsenda þess að bankinn geti sett sér markmið varðandi samdrátt í losuninni og er það næsta skref.
Ábyrg innkaup og samskipti við birgja í tengslum við þeirra frammistöðu í umhverfis- og loftslagsmálum skipta okkur máli og á árinu 2020 innleiddum við nýtt UFS birgjamat. Siðareglur birgja voru innleiddar á árinu 2021.
Mannauður bankans, jafnréttismál, mannréttindi, fræðsla, heilsa og öryggi starfsfólks skipta miklu máli í starfsemi bankans og endurspeglast það meðal annars í stefnum bankans, svo sem mannauðsstefnu, fræðslustefnu, jafnréttis- og mannréttindastefnu og heilsu- og öryggisstefnu.
Framkvæmdastjórn bankans hefur samþykkt sex heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem bankinn ætlar að leggja megináherslu á. Markmiðin sem unnið verður sérstaklega að eru markmið 5 um jafnrétti kynjanna, markmið 7 um sjálfbæra orku, markmið 8 um góða atvinnu og hagvöxt, markmið 9 um nýsköpun og uppbyggingu, markmið 12 um ábyrga neyslu og framleiðslu og markmið 13 sem snýr að aðgerðum í loftslagsmálum. Þessi sex heimsmarkmið eru einnig höfð að leiðarljósi við val á efnisþáttum og mörkum þeirra.
Allir efnisþættir og mörk þeirra snúa að Arion banka, dótturfélög bankans eru ekki tekin með í þessari skýrslu nema það sé sérstaklega tekið fram.
Eftirfarandi mikilvægisþættir voru metnir viðeigandi árið 2022:
- GRI 201 Fjárhagsleg frammistaða 2016
- GRI 203 Óbein efnahagsleg áhrif 2016
- GRI 204 Framkvæmd innkaupa 2016
- GRI 205 Aðgerðir gegn spillingu 2016
- GRI 206 Samkeppnishamlandi hegðun 2016
- GRI 302 Orka 2016
- GRI 303 Vatn og frárennsli 2018
- GRI 304 Líffræðilegur fjölbreytileiki 2016
- GRI 305 Losun gróðurhúsalofttegunda 2016
- GRI 306 Úrgangur 2020
- GRI 308 Mat á frammistöðu birgja varðandi umhverfismál 2016
- GRI 401 Atvinnumál 2016
- GRI 402 Kjaramál 2016
- GRI 403 Heilsa og öryggi starfsfólks 2018
- GRI 404 Þjálfun og fræðsla 2016
- GRI 405 Fjölbreytileiki og jöfn tækifæri 2016
- GRI 406 Mismunun 2016
- GRI 413 Nærsamfélagið 2016
- GRI 414 Mat á frammistöðu birgja varðandi félagsþætti 2016
- GRI 415 Opinber stefna 2016
- GRI 417 Markaðssetning og merkingar á vörum 2016
- GRI 418 Persónuvernd 2016
Stýring mikilvægisþátta
Stýring einstakra viðfangsefna í Árs- og sjálfbærniskýrslu Arion banka 2022 samkvæmt GRI Standards fer í gegnum sama ferli og önnur verkefni innan Arion banka, í gegnum stjórn eða yfirstjórn og viðeigandi svið og eftirlitseiningar.
Á árinu 2021 var sjálfbærninefnd sett á laggirnar og var stýring á sjálfbærniáhættu í tengslum við umhverfis- og félagsþætti og stjórnarhætti skilgreind sem hluti af áhættustýringarkerfi bankans. Sjá nánari upplýsingar hér.
Fjöldi stefna og reglna sem snúa að viðfangsefni skýrslunnar hefur verið samþykktur af stjórn bankans og framkvæmdastjórn, meðal annars:
Stefna um sjálfbærni
Umhverfis- og loftslagsstefna
Mannauðsstefna
Jafnréttis- og mannréttindastefna
Heilsu- og öryggisstefna
Siðareglur
Siðareglur birgja
Reglur Arion banka um meðferð kvartana
Persónuverndaryfirlýsing
Reglur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
Reglur um meðferð hagsmunaárekstra
Stefna um ábyrga vörustjórnun, vöruframboð og markaðssetningu til einstaklinga
Stefna um framlög til stjórnmálastarfs
Styrktarstefna
Einnig er Arion banki aðili að ýmsum innlendum og erlendum sáttmálum og skuldbindingum í tengslum við ábyrga bankastarfsemi og vinnur að því að uppfylla þær skuldbindingar. Sjá umfjöllun hér.
Vísað er í frekari umfjöllun um aðgerðir okkar varðandi einstök viðfangsefni í GRI tilvísunartöflu. Unnið verður að frekari hlítni við GRI 3 á árinu 2023.