Áhættuskýrsla 2022
Áhættuskýrsla Arion banka inniheldur upplýsingar um helstu áhættuþætti í starfsemi bankans, áhættustýringu og eiginfjárstöðu. Skýrslan tekur mið af kröfum um upplýsingagjöf samkvæmt lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki og ákvæðum reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki (CRR). Í áhættuskýrslunni er meðal annars fjallað um nýja og væntanlega löggjöf sem snertir bankann sem og starfskjarastefnu hans. Skýrslan tekur til samstæðu Arion banka, að tryggingafélögum undanskildum.